1.-I

Fyrsti I er bekkurinn!

20.09.2007 14:28:55 / einar

Selja síðuna??

Jæja krakkar.. við getum ekki setið hérna í aðgerðaleysi lengur!.. Við verðum að selja nýju fyrsta i busunum þessa síðu í snarasti.. 15 þús kall og málið er dautt.. sammála? .. .segðu bara já kv . einar - 2U

» 12 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 01:27:14 / alma

hvaar...

hæ krakkar:) þetta er margrét ekki alma.. man bara hennar dót en ekki mitt..

en mig langaði bara svona að vita hvar þið verðið öll næsta vetur.. endilega kommenta um það :D ég verð allavega áfram í MA og í 2.F ;D

 

 


» 16 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 00:16:20 / solrun

=D

Jæja þá er þetta búið, eða að minnsta kosti hjá sumum, ekki allveg öllum þar á meðal er þetta ekki búið hjá mér:S en mér langaði bara til að þakka ykkur fyrir veturinn það var frábært að kynnast ykkur öllum og vonandi hittumst við næsta vetur þó að sumir verða í öðrum skólum;) en já það eina sem mig langaði að gera var að þakka ykkur fyrir, vonandi hafið þið skemmt ykkur eins vel og ég gerði;) ég bið bara að heilsa ykkur öllum og skemmtið ykkur vel í sumar;)

~Sólrún~


» 10 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 18:22:15 / bjarki

alveg að verða búið

jæja krakkar, bráðum lýkur þessu skólaári, stutt eða ? bara eitt próf eftir !
En ég var svona að pæla hvort við þyrftum ekki að gera eitthvað saman svona til að kveðja góðan vetur sem fyrsti bekkur I. Ég legg til að allir koma með einhverjar hugmyndr :) ég er sjálfur ekki mikill skipuleggjari þannig að ég er bara að láta ykkur vita til að við getum planað eitthvað saman ;) ég þarf líka að knúsa alla á þessum hitting sem hefur ekki verið planaður ennþá.... þar sem það er ekki víst hvort að ég komi aftur orður eða ekki, vona samt að sjálfsögðu að ég komi aftur.

» 10 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 13:51:37 / alma

Smáskilaboð

 
 
klárlega...! :D 

» 6 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 16:20:48 / alma

Hmm..!

 

Jáneinei...Hvað er í gangi??? Djöfull sökkum við í þessu blessaða síðuhaldi!!!

Við sem byrjuðum svooo vel haaa...enn jæja

Stutt í próf, og við ætlum auðvitað öll að ná öllu...right:/??? hehhh...

Jáhh ógesslega skemmtilegt sko ;)

Feiri mynir úr þessu yndislega böðlapartýi á www.blog.central.is/hresst og líka á www.blog.central.is/astral ;) þannig að...um að gera að tékka á því ;)

-Alma Rún Vignisdóttir


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 18:27:07 / bjarki

Kveldið..

 Hæ krakkar. Það er svo lítið bloggað hérna þannig ða ég ákvað að lífga aðeins upp á þetta með þessari frábæru mynd sem ég sá á netinu áðan :D Kannski kemur smá umræða um þessa mynd ;) Takk fyrir mig.
-BjarkiF.

P.S. Man U stðningsmenn ekki taka þetta of nærri ykkur ;) 

The new Man Utd. shirt.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 17:42:44 / lindarun

He hemmmmmm???

Hvað er að gerast! Letingjarnir ykkar.

Hét því að ef ekki væri búið að blogga á síðuna þegar ég myndi fara inn á hana í þriðja skiptið í dag þá myndi ég taka til hendinni (höndunum) og ráða á því bætur. Og núna hefst það.

Í dag og í gær er búið að vera rugl gott veður á Akureyri. Ég hélt að þetta mætti bara ekki!! Við búum á ÍSlandi, þið vitið þar sem ísinn þykist alltaf ráða, en nei nei. Mælarnir sýndu upp í 23° hér í gær og sá 20° í dag sem er alls ekki slæmt. Sjúklega gott veður enda er maður búinn að halda sig meira úti en inni í dag!

Hvað haldiði... Manneskjan sem alltaf hægt er að stóla á að viti hvenær það er EKKI skóli, brást heldur betur í dag. Ég sem sagt er alltaf með það á hreinu hvenær það er frí í skólanum en í dag var ég búin að GLEYMA að það væri frí á morgun... Hugsið ykkur bara...

En já. Ég er að fara austur á eftir. Best að hafa sig til...

Sjáumst á miðvikudaginnnnnnnn :haha:

Linda Rún


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 15:16:40 / gisli

Pa-pa-pa-pa-paaaaartý!

Komiði sæl kæru bekkjarsystkin! 8)

 

Ég er ekki frá því að það verði rosalegt fyrstai djamm í Sjallanum annað kvöld! Enginn annar en DJ Páll Óskar! Ég fer fram á að allir sem eru í bænum láti sjá sig þar! Vil líka leggja til að Borgnesingar og aðrir fjarsveitungar (ehh ha?) leggi upp í ævintýra ferð í Sjallann! Allavega ætla ég að láta sjá mig! 

 

Munið svo að háma í ykkur páskaegg!

Gísli!  


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 00:03:01 / eirikurþor

Jæja gamli bekkur

Þetta var nú sorgleg kveðjustund þarna um daginn. Ég er bara ekkert búinn að nenna að blogga en geri það nú. Þetta er búið að vera frábær reynsla. Líka það að geta kynst svona skemmtilegum krökkum eins og ykkur. En svona er þetta ég þurfti að fara og er nú heima að borða góðan mat! og sef út... svona eiginlega. En ég vil bara þakka ykkur fyrir það að hafa verið bekkjasystkinin mín!

 

Takk fyrir mig og Hagið ykkur vel !:P 


» 17 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 17:56:58 / lindarun

Jæja kidzo...

Í dag er miðvikudagur og það styttist senn í að hann muni frá hverfa, sem er ekkert til þess að grenja yfir. Á morgun er fimmtudagur, blessunarlega mun hann verða hin ágætasti vonandi með tilkomu íþróttadags og þar af leiðandi stytta hann (missum af dönsku (JESS!!!) og íslensku (jess, ekkert próf)) en eins og þið vitið getur þessi dagur verið til mikils ama.

En málið er, hverjir ætla að mæta með íþróttaföt fyrir íþróttatímann sem ætti skv. öllu að byrja kl tuttugu mín yfir tólf? Ætli mótið verið búið þá?
Þetta er spurning sem ég velti mikið fyrir mér. En held samt að ég eigi ekki eftir að mæta með íþróttaföt fyrir þann tíma.

Því miður. UTN verður kennd, sem er hrikalega leiðinlegt mál, en það verður að hafa það.

Sé ykkur á morgun, Í BLEIKU!

Oj

2 skóladagar í páskafrí! :haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 21:45:43 / dyrleif

BARA 5 dagar í páskafrí ;)

Jæja krakkar mínir.. eruði ekki bara hress? ég sé að það er alveg hreint svakalegt hvað er bloggað mikið á þessa síðu núna, held að tölvukerfið meiki ekki svona miklar upplýsingar :P

Það eru bara 5 skóladagar í páskafrí!! eruði að trúa þessu?
ég get ekki beðið :D

Hvernig væri að við yrðum geggjað dugleg að blogga á þessa síðu eftir páskafrí  ? :P

 

blogg out 


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 13:25:24 / einar

Jéésss

Mig langaði bara að deila því með ykkur að gærkvöldið var eitt besta djamm sem ég hef farið á! Kvöldið var súrealískt, of mikil fullkomnun. Endaði samt í ógeðslegasta koketeilsósupartýii sem ég hef farið í ..

 Be cool

-einar 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 16:42:25 / bjarki

Alls ekki sáttur! :O

Hvar er allt bloggið?? :O og hvar var klappliðið í dag?? :O Það var blakmót í dag og ekkert klapplið. alls ekki sáttur kæru bekkjarsystkin. Verður sko að bæta þetta sem og bloggið okkar hérna! En já ég vil þakka ykkur krakkar sem kepptuð á mótinu :P við unnum einn leik, getum verið mjög stolt af okkur :D Núna er kominn helgi krakkar og Eiríkur er svo að hverfa á braut á sunnudaginn, allir að vera vissir um að vera búnir að kveðja hann! En já 1.I. við skulum halda áfram að blogga á þessari blessuðu síðu! og mæta á mótin sem við keppum í!

-BjarkiF. 


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 18:04:08 / bjarki

Daginn!

Þetta er eitthvað að slappast hérna! lítið bloggað! allir eiga að vera duglegir að blogga hérna, þetta er nú bekkjarsíðan! Ég hef nú reyndar ekki mikið að segja eeen samt er ég að blogga því að það er margt hægt að segja þó ða maður hafi ekkert að segja! - Speki ársins 2007.
En ég vil spyrja ykkur kæru bekkjarsystkin, hvað finnst ykkur um þennan fake enska hreim sem Harpa enskukennari er með?? bara verð að vita hvernig ykkur finnst þetta.... mér finnst hann alveg hræðilega pirrandi..... hún þarf að sætta sig við það að hún er íslensk og nær ekki þessum hreim...urrrr.....vonandi fattar hún það bráðlega! en jæja þetta er ekki merkilegasta umræðuefni sem menn hafa séð en samt einhver umræða hérna í gangi :P og koma svo krakkar, blogga meira! :D

-Bjarki Freyr Ben.

Liverpool!

AAAWWW YEAHH! 


» 23 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Önnur Blogg